Búið er að slökkva eld sem kom upp í eldhúsi á veitingastaðnum Nings á Suðurlandsbraut 6 í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu er nú unnið að reykræstingu á staðnum. Allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var kallað út á staðinn.
Ekki liggur ljóst fyrir út frá hverju eldurinn kviknaði. Að sögn varðstjóra slökkviliðsins var mikill eldur í eldhúsinu þegar slökkviliðið kom á staðinn en greiðlega gekk að slökkva hann.