Hlutfallslegt verðlag og landsframleiðsla hæst hér

Verðlag er hæst hér á landi í Evrópu.
Verðlag er hæst hér á landi í Evrópu. Árvakur/Eyþór

Niðurstöður alþjóðlegs verðsamanburðar árið 2005 ásamt bráðabirgðaniðurstöðum árið 2006 sýna, að Ísland er í hópi ríkja þar sem verg landsframleiðsla á mann er mest, 30% yfir meðaltali Evrópusambandsríkjanna 27. 

Hlutfallslegt verðlag er einnig hæst á Íslandi, 42% yfir meðaltalinu fyrir landsframleiðsluna í heild og 64% yfir því fyrir mat og drykkjarvörur. Þetta kemur fram í nýju riti Hagstofunnar.


Niðurstöðurnar eru afar mismunandi milli ríkja. Landsframleiðslan er minnst í Albaníu, 21% af meðaltali ESB. Mest er landsframleiðsla á mann í Lúxemborg, 180% yfir meðaltalinu.

Samanburðurinn nær til Íslands og 36 annarra Evrópuríkja. Niðurstöðurnar sýna jafnvirðisgildi, hlutfallslegt verðlag, verðmæti og magn landsframleiðslu.

Rit Hagstofunnar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka