Ætlunin er að setja met í hvað varðar fjölda fólks á Hvannadalshnúk í einni ferð í vor eru þeir sem eru áhugasamir um að taka þátt boðaðir á kynningarfund í kvöld. Eru það fyrirtækin Íslenskir fjallaleiðsögumenn og 66°Norður sem standa að ferðinni.
Kynningarfundurinn verður haldinn í verslun 66°Norður, Faxafeni 12 klukkan 20:00. Einar Torfi Finnsson og Leifur Örn Svavarsson fjallagarpar munu sjá um kynningarfundinn og svara spurningum.
Í fréttatilkynningu kemur fram að kostnaður verður skorinn niður eins og hægt er við ferðina.
Nánari upplýsingar