Reynt var í dag að ná kindum, sem hafa verið í sjálfheldu í Ólafsvíkurenni síðan í haust. Féð var komið það neðarlega að eigandinn taldi að væri lag að ná þeim niður. Ærnar reyndust hins vegar vera mjög styggar og fóru ofar í ennið og þangað treystu björgunarmennirnir sér ekki.
Talsverður vindur var í dag og gekk á með byl auk þess sem Ólafsvíkurenni er snævi þakið og mjög hált. Urðu menn því frá að hverfa.