Dánarorsök fanga, sem lést í fangelsinu að Litla-Hrauni í september, var lyfjaeitrun, að því er kom fram í fréttum Stöðvar 2. Fram kom að ættingjar mannsins hyggjast fara í skaðabótamál gegn ríkinu þar sem talið sé að afleysingalæknir hafi gefið fanganum sterkt verkjalyf.