Númerin fjarlægð

Undanfarna daga hefur lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fjarlægt skráningarnúmer ökutækja sem ekki uppfylla ákvæði um skoðun eða eru ótryggð. Eftirlitinu verður framhaldið enda er töluvert um ótryggð og óskoðuð ökutæki í umdæminu.

Lögreglan hvetur jafnframt eigendur og umráðamenn þeirra til að gera bragarbót á, svo ekki þurfi að koma til fyrrnefndra aðgerða. Sem fyrr heldur lögreglan úti reglulega eftirliti með ölvunarakstri en á morgun, föstudag, mega ökumenn búast við að verða stöðvaðir vegna þessa víðsvegar í umdæminu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert