Kona, sem var ein á ferð, virðist hafa sloppið ómeidd er snjóflóð féll á bíl hennar þar sem hún var á leið á milli Súðavíkur og Ísafjarðar í morgun.
Samkvæmt upplýsingum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar er ekki ljóst hvort fleiri bílar lentu í flóðinu eða hversu stórt það var en lögregla og björgunarsveitarmenn eru á leið á staðinn.