Að sögn lögreglunnar er ágætis ferð á helstu umferðaræðum höfuðborgarsvæðisins. Ekkert hefur snjóað í nótt og hafa starfsmenn Vegagerðarinnar unnið að því að moka helstu leiðir. Gera má þó ráð fyrir að færð inni í hverfum og í og við bílastæði geti verið erfið.