Reykingar verða bannaðar í Alþingishúsinu frá og með 1. júni næstkomandi, samkvæmt samþykkt forsætisnefndar Alþingis í dag. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu. Reykingar eru nú leyfðar í sérstöku loftræsu herbergi í húsinu samkvæmt heimild í reglugerð.
Í fréttatilkynningu frá forseta Alþingis, Sturlu Böðvarssyni, í dag segir:
„Á fundi forsætisnefndar Alþingis í dag, hinum 500. frá því að Alþingi hóf að starfa í einni málstofu árið 1991, samþykkti nefndin eftir tillögu forseta Alþingis, Sturlu Böðvarssonar, að banna reykingar í Alþingishúsinu frá og með 1. júní næstkomandi. Bannið nær til þinghússins, skrifstofubygginga Alþingis, Alþingisgarðsins og annars staðar á lóð þingsins.“