Mikill viðbúnaður var hafður eftir að tilkynnt var að rúta hefði fokið út af veginum nálægt Hvanná á Jökuldal í dag.
Rútan valt á hliðina í vindhviðu og lenti í skafli. Lögregla og sjúkralið komu á vettvang, og aðstoðuðu við að koma 16 ungmennum á heilsugæslustöðina á Egilstöðum.
Að sögn lögreglunnar á Egilstöðum voru ungmennin aðstoðuð við að komast til síns heima eftir að staðfest var að allir væru ómeiddir.