Starfsmenn Flugmálastjórnarinnar á Keflavíkurflugvelli og lögregla hafa hafið flutning fólks úr þremur flugvélum Icelandair sem hafst hefur við um borð í flugvélunum við flugstöðina síðan þær lentu síðdegis í dag í von um að veður myndi lægja svo tengja mætti landgöngubrýr flugstöðvarinnar.
Sú von hefur ekki ræst og því var ráðist í að ná fólkinu frá borði með flugvallarstigum og flytja þá í hópferðabifreiðum í húsaskjól í flugstöðinni.
Slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli lagði til stórar flugvallarslökkvibifreiðar sem mynduðu nokkurt skjól til athafna. Flugvallarverðir og lögreglumenn mynduðu röð niður landgangsstigann og að bifreiðum og aðstoðuðu farþega við að komast í skjól í storminum. Hafa 178 farþegar þegar verið fluttir frá borði úr einni flugvél auk áhafnar og er unnið að losun hinna tveggja.
Öryggismörk til afgreiðslu flugvéla við flugstöðina á Keflavíkurflugvelli eru við 26 metra vindhraða og ekki hægt að afgreiða flugvélar við slíkar aðstæður.
Veður er enn slæmt á flugvellinum og öllu Ameríkuflugi hefur verið aflýst næsta sólarhringinn.