Umferð um Sandskeið er nú að komast í eðlilegt horf en þar urðu umferðatafir í morgun vegna umferðaróhapps þar sem ökutæki teppti umferð til austurs. Ófært er enn um Hellisheiði en gert er ráð fyrir að hún opni seinna í dag. Hálka er á Reykjanesbraut og í Þrengslum.