Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu beinir þeim tilmælum til allra að vera ekki á ferli nema brýna nauðsyn beri til. Nú er vindhæð það mikil að varasamt er að vera úti.
Í tilkynningu frá Samhæfingarstöðinni er fólk beðið að draga fyrir glugga sem eru áveðurs og dvelja ekki í herbergjum þar sem gluggar eru áveðurs.