Vilja álver á Bakka

Bæjarráð Akureyrar lýsir yfir eindregnum stuðningi við áform um uppbyggingu álvers á Bakka við Húsavík, skv. bókun sem gerð var á fundi ráðsins í gærmorgun. Fjórir ráðsmenn samþykktu bókunina en fulltrúi VG sat hjá við afgreiðsluna.

„Á undanförnum árum hefur alvarlegur samdráttur í fiskvinnslu og landbúnaði haft veruleg áhrif á afkomu fólks, atvinnuöryggi og búsetu á svæðinu. Á síðustu 10 árum hefur íbúum á svæðinu frá Húsavík til Raufarhafnar, sem nú heitir Norðurþing, fækkað um 15%. Mest hefur fækkunin verið í aldurshópnum 40 ára og yngri, en í þeim aldursflokki hefur íbúum fækkað um 25%. Kjölfesta í atvinnumálum er nauðsynleg til þess að snúa vörn í sókn og viðhalda gróskumikilli byggð á Norðausturlandi,“ segir í bókun bæjarráðs. „Fyrirhugað álver á Bakka getur skapað þessa kjölfestu. Álverið mun skapa um 300 ný framtíðarstörf og afleidd störf verða mun fleiri og áhrifa þeirra mun gæta langt út fyrir Norðurþing, ekki síst á Akureyri og Eyjafjarðarsvæðinu. Bæjarráð skorar því á stjórnvöld að beita sér fyrir því að af þessum framkvæmdum geti orðið sem fyrst.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert