Umferð sýnd í beinni?

Umferðarmyndavélum Vegagerðarinnar fer fjölgandi. Nú þegar er hægt að sjá reglulega uppfærðar ljósmyndir af helstu heiðum og fjallvegum á vefsíðu hennar, en umferðarmyndavélar á höfuðborgarsvæðinu eru einnig að bætast við. Nú þegar hafa verið settar upp myndavélar á Arnarnesbrúnni við Hafnarfjarðarveg í Garðabæ og á Bústaðabrú yfir Kringlumýrarbraut. Þær myndavélar senda gögn um ljósleiðara og uppfærist myndin á einnar sekúndu fresti. Það eru því í raun hreyfimyndir í beinni útsendingu, þar sem sjá má umferðina streyma um göturnar, eða umferðarteppur ef svo ber við.

Að sögn Bjarna Stefánssonar, deildarstjóra viðhalds og þjónustu hjá Vegagerðinni á suðvestursvæði, er líklegt að myndir frá þessum vélum verði komnar á netið innan skamms. Hann segir megintilgang þeirra að auðvelda Vegagerð, sveitarfélögum og lögreglu eftirlit með veðurfari, snjóalögum og umferð, en einnig geti þetta gagnast ökumönnum sem vilja velja sér ökuleið áður en farið er úr húsi, í samræmi við færð og umferðarþunga.

Nánar er fjallað um málið í sunnudagsblað Morgunblaðsins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert