Erilsamt á Suðurnesjum

Erilsamt var hjá lögreglunni á Suðurnesjum í nótt. Tveir ökumenn voru kærðir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna og einn grunaður um ölvun við akstur.

Tveir gistu fangageymslu lögreglunnar vegna ölvunar og óláta og einn fyrir ölvun við akstur og verða þeir teknir fyrir þegar rennur af þeim áfengisvíman.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert