Tæplega þrítugur karlmaður er alvarlega slasaður eftir að hafa stungið sér til sunds í grynnri enda sundlaugarinnar á Flúðum um kvöldmatarleytið í gær. Að sögn lögreglunnar á Selfossi er talið líklegt að hann sé hálsbrotinn.
Maðurinn var fyrst fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurlands til aðhlynningar en þaðan var hann fluttur á slysadeild í Reykjavík.