Olíutankbíll frá Olíudreifingu rann útaf veginum í miðjum Þrengslunum á leið frá Þorlákshöfn til Reykjavíkur um klukkan fjögur í dag. Engin meiðsl urðu á mönnum og engar teljanlegar skemmdir urðu á bílnum sem stór flutningabíll með tengivagn.
Tankurinn var að sögn lögreglu tómur.