Það er hálka og éljagangur á Hellisheiði, í Þrengslum og á Sandskeiði. Á
Suðurlandi eru víðast hvar hálkublettir en þó er hálka í uppsveitum
Árnessýslu. Á Vesturlandi er hálka á Fróðárheiði og á Vatnaleið. Á Bröttubrekku er snjóþekja og hálka og éljagangur er á Holtavörðuheiði.
Hálka er á flestum leiðum á Vestfjörðum ásamt éljagang á stöku stað,
skafrenningur er á Ströndum og á sunnaverðum Vestfjörðum.
Norðan- og austanlands er víðast hvar hálka eða hálkublettir. Flughált er á
Sandvíkurheiði. Snjóþekja og éljagangur á Mývatnsöræfum og á Hólasandi.
Suðaustanlands er víða snjóþekja eða krapi, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.