Þvottárskriður lokaðar vegna grjóthruns

Það er víða hálka á vegum landsins.
Það er víða hálka á vegum landsins. mbl.is/RAX

Lokað er í Þvottárskriðum vegna grjóthruns. Unnið er að hreinsun og verður vegurinn opnaður eins fljótt og hægt er. Það er hálka og éljagangur á Hellisheiði, í Þrengslum og á Sandskeiði.  Á Suðurlandi eru víðast hvar hálkublettir en þó er hálka í uppsveitum Árnessýslu.

Á Vesturlandi er snjóþekja á  Fróðárheiði og hálka er á Vatnaleið en
mokstur stendur yfir á báðum leiðunum. Búið er að opna Bröttubrekku en þar er snjóþekja og éljagangur. Hálka og snjókoma er á Holtavörðuheiði.

Það er víða þæfingsfærð á Vestfjörðum. Hálka er á Kleifaheiði og á Hálfdán.
Á Steingrímsfjarðarheiði er þungfært. Þæfingsfærð er í Ísafjarðardjúpi.
Unnið er að mokstri á öllum helstu leiðum.

Norðan- og austanlands er víðast hvar hálka eða hálkublettir. Flughálka er
á Sandvíkurheiði. Suðaustanlands er víða snjóþekja eða krapi en unnið er að hreinsun, samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert