Sjö réttindalausir ökumenn, allt karlar, voru stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Fimm þeirra reyndust hafa verið sviptir ökuleyfi og tveir höfðu aldrei öðlast ökuréttindi. Ökumennirnir eru á ýmsum aldri en sá elsti í hópnum er á níræðisaldri og hefur áður gerst sekur um umferðarlagabrot.
Þá voru 12 ökumenn teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um síðustu helgi. Fimm voru stöðvaðir á laugardag og sjö á sunnudag. Tíu voru teknir í Reykjavík og einn í Kópavogi og Garðabæ. Þetta voru allt karlmenn á aldrinum 17-50 ára. Fjórir í þessum hópi eru undir tvítugu og jafnmargir eru á þrítugsaldri.
Á sama tímabili tók lögreglan tvo ökumenn sem voru undir áhrifum fíkniefna. Annar var stöðvaður í Reykjavík en hinn í Mosfellsbæ. Um var að ræða tvo karlmenn á fertugsaldri.