Skeljungur lækkaði aftur eldsneytisverð í kvöld og er verð þá það sama hjá stóru olíufélögunum. Skeljungur lækkaði verð á bensínlítra um 1,30 krónur og er algengt verð í sjálfsafgreiðslu þá 137,90 krónur. Þá lækkaði verð á dísilolíulítra um 0,90 krónur og er 142,40 krónur.