Stjórnvöld munu ekki koma að lausn kjaradeilunnar milli samtaka verkalýðshreyfingarinnar og atvinnurekenda fyrr en sér til lands í samningaviðræðunum. Þetta segir Ingibjörg R. Guðmundsdóttir formaður Landssambands íslenskra verslunarmanna og varaforseti ASÍ.
Forystumenn innan Alþýðusambandsins funduðu í morgun, en framundan eru frekari vinna og fundasetur aðildarfélaganna og atvinnurekenda. Ekkert er sagt ákveðið um samflot aðila að sambandinu við samningagerðina.