Mánudaginn 11.febrúar síðastliðinn um klukkan 07:28 varð umferðaróhapp á mótum Miklubrautar og Háaleitisbrautar í Reykjavík, en umferð þar er stjórnað með umferðarljósum. Lentu þar saman fólksbifreið af Toyota Previa gerð, dökkgræn að lit, sem ekið var austur Miklubraut með fyrirhugaða akstursstefnu áfram veginn og fólksbifreið af gerðinni Toyota Hilux, ljósgrá að lit, sem ekið hafði verið vestur Miklubraut með fyrirhugaða akstursstefnu suður Háaleitisbraut.
Ágreiningur er uppi um stöðu umferðarljósa þegar áreksturinn varð og því eru þeir vegfarendur sem kunna að hafa orðið vitni að óhappinu, beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444 1000.