Arna Schram, formaður Blaðamannafélags Íslands, hefur sent Sjálfstæðisflokknum bréf í tilefni af framkomu starfsmanna flokksins við blaðamenn á blaðamannafundi með Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni, borgarfulltrúa, fyrr í vikunni.
Bréfið er eftirfarandi:
„Blaðamannafélag Íslands harmar framgöngu starfsmanna Sjálfstæðisflokksins vegna blaðamannafundar í Valhöll í vikunni. Hópi fjölmiðlamanna var meinaður aðgangur að fundi í beinni útsendingu með kjörnum fulltrúa borgarinnar um málefni sem brennur á almenningi.
Til að tryggja opið og lýðræðislegt samfélag þarf að greiða leið allra fjölmiðla að fréttaviðburðum. Blaðamannafélagið varar við tilraunum til þess að standa í vegi fyrir því.
Vinnubrögð af því tagi sem viðhöfð voru í vikunni eru auk þess einungis til þess fallin að skapa tortryggni. BÍ fer fram á að þau endurtaki sig ekki. Í lýðræðislegu samfélagi verða fjölmiðlar að hafa frelsi til að sinna skyldum sínum."