Ríkisstjórnin fundaði með aðilum á fjármálamarkaði í Ráðherrabústaðnum í dag. Geir Haarde forsætisráðherra sagði að fundurinn hefði verið gagnlegur en að engar formlegar ákvarðanir hefðu verið teknar. Geir sagði mikilvægt að allir aðilar sýndu samstöðu miðað við núverandi ástand í efnahagslífinu.