Á 125 km hraða í Hvalfjarðargöngunum

Umferð við Hvalfjarðargöngin.
Umferð við Hvalfjarðargöngin. mbl.is

Brot 58 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum frá þriðjudegi til fimmtudags eða á rúmlega 45 klukkustundum. Vöktuð voru 3.527 ökutæki og því ók lítill hluti ökumanna, eða 1,6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 85 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Fimm óku á 90 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 125 km hraða.

Samkvæmt þessari niðurstöðu aka hlutfallslega færri of hratt eða yfir afskiptahraða í Hvalfjarðargöngum samanborið við árið 2007, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert