Sighvatur Bjarnason VE. kom með fyrstu loðnuna til Eyja á þessari vertíð í nótt. 650 tonn fengust í Reyðarfjarðardýpi í nótt.
Byrjað var að landa strax og vinnsla hófst í morgun en útlit er fyrir að mest af þessum afla fari í frystingu hjá Vinnslustöðinni hf í Vestamanneyjum.
Mikill viðburður þykir að loðna kemur til löndunar, þar sem veðrátta hefur verið slæm, og illa hefur gengið að finna loðnu.