Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum janúarmánuði, metinn á föstu verði, var 14% minni en í janúar 2007. Aflinn nam alls 73.393 tonnum í janúar 2008 samanborið við 81.902 tonn í janúar 2007. Botnfiskafli dróst saman um tæp 7.300 tonn frá janúarmánuði 2007 og nam 26.100 tonnum. Þorskafli dróst saman um tæp 6.300 tonn og ufsaaflinn um rúm 100 tonn. Ýsuaflinn jókst aftur á móti um rúm 1.000 tonn miðað við janúar 2007.
Afli uppsjávartegunda nam rúmum 46.200 tonnum sem er tæpum 200 tonnum minni afli en í janúar 2007. Síldarafli jókst um 15.700 tonn og kolmunnaafli um tæp 2.600 tonn en loðnuafli dróst saman um tæp 19.400 tonn. Flatfiskaflinn stóð í stað á milli ára, var rúm 900 tonn. Skel- og krabbadýraafli var 68 tonn samanborið við 151 tonna afla í janúar 2007.
Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2004. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar, samkvæmt frétt á vef Hagstofu Íslands.