Konur í meirihluta á stofnunum fyrir aldraða

Hrafnista í Reykjavík
Hrafnista í Reykjavík Árvakur/ÞÖK

Af 3.244 öldruðum sem bjuggu á stofnunum með vistrými fyrir aldraða í desember árið 2006 voru konur tæp 64%.  Tæp 10%  67 ára og eldri bjuggu í vistrýmum í desember árið 2006.  Þetta hlutfall var tæp 12% á landsbyggðinni en rúm 9%  á höfuðborgarsvæðinu. Árið 2006 var fjórðungur fólks 80 ára og eldra búsettur í vistrýmum aldraðra. 

 Frá árinu 2001 til ársins 2006 fjölgaði vistmönnum í heild um 170 (5,5%), en vistmönnum í hjúkrunarrými á hjúkrunarheimilum um 466 (29%).  Þetta kemur fram í hagtíðindum Hagstofu Íslands  um stofnanaþjónustu og dagvistir aldraðra. 

Frá árinu 1993 hefur Hagstofa leitað upplýsinga hjá þeim rekstraraðilum sem heilbrigðisráðuneytið veitir árlega heimildir fyrir vistrými fyrir aldraða og dagvistun þeirra. Árið 2006 voru 92 stofnanir með slíkar heimildir. Þrjár fjórðu þeirra eða 68 voru reknar af ríki og sveitarfélögum, 18 (19,6%) voru sjálfseignarstofnanir og 6 (6,5%)  á vegum einkaaðila.  Í desember árið 2006  voru vistrými alls 3.458, þar af voru hjúkrunarrými 2.138 eða 61,8%  vistrýma.  Á tímabilinu 2001 til 2006 fjölgaði vistrýmum um 232 eða 7,2%.  Breyting á fjölda vistrýma milli áranna 2001 og 2006 fólst m.a. í  fjölgun  hjúkrunarrýma á dvalar- og/eða hjúkrunarheimilum en fækkun dvalarrýma. Þannig fjölgaði hjúkrunarrýmum um 472 eða rúm 28%, en dvalarrýmum fækkaði um 215.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert