Vopnað rán á veitingastað í miðbænum

Vopnað rán var framið á veitingastað við Ingólfstorg í Reykjavík á sjötta tímanum í kvöld. Tveir karlmenn um tvítugt ruddust inn á staðinn og börðu afgreiðslumann með kylfu. Þeir rændu síðan peningum úr kassanum. Lögregla leitar nú árásarmannanna sem komust undan. Afgreiðslumaðurinn slapp samkvæmt upplýsingum lögreglu lítt meiddur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert