Liðkað fyrir póstverslun

„Við erum í viðræðum við lyfjabúðirnar um að endurskoða álagninguna,“ segir Rúna Hauksdóttir Hvannberg, nýr formaður lyfjagreiðslunefndar.

„Einnig er verið að breyta sjúkratryggingarkerfinu öllu. Svokölluð Pétursnefnd er að skoða það mál og þar koma lyf inn í. Þá breytast forsendur og það verður hægt að breyta ýmsu, líklega líka álagningu á lyf.“

Lyfjanefnd annast verðsamanburð á lyfjum hér og annars staðar á Norðurlöndum. Í nýju frumvarpi er gert ráð fyrir að liðka fyrir póstverslun með lyf og markaðssetningu lyfja.

„Frumlyf eru miklu dýrari því þau eru háð einkaleyfum, samheitalyf eru ódýrari því þá er einkaleyfið fallið niður. Okkur vantar hér á markað fleiri samheitalyf,“ segir Rúna. Hún bindur vonir við að norrænt samstarf leiði til þess að ný lyf komi fyrr á markað hér á landi og segir einnig að eldri lyf sem ekki er lengur einkaleyfi á dugi mörgum eins vel og nýrri og dýrari lyf.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert