Rafmagnslaust í fjóra tíma

Rafmagnslaust var í vesturhluta Kópavogs og gamla Silfurtúninu í Garðabæ í hátt í fjórar klukkustundir í nótt. Talið er að rekja megi  rafmagnsleysið til bilunar í streng í nýja Arnarness-hverfinu. Rafmagnsleysisins varð vart á öðrum tímanum og komst rafmagn ekki aftur á fyrr um skömmu fyrir klukkan fimm.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert