Stjórn Geðlæknafélagsins harmar að enn sé þrengt að meðferð og endurhæfingu geðsjúkra á Íslandi með niðurskurði og sparnaðaraðgerðum í ályktun sem félagið hefur sent frá sér. Þar er þeim eindregnu tilmælum beint til stjórnar Landspítala að hætt verði við lokun á starfsendurhæfingu Bergiðjunnar við Kleppsspítala og breytingu á deild 28 í Hátúni 10 úr sólarhringsdeild í dagdeild.
„Stjórn Geðlæknafélags Íslands harmar að enn á ný sé þrengt að meðferð ogendurhæfingu geðsjúkra á Íslandi með niðurskurði og sparnaðaraðgerðum við Landspítala Háskólasjúkrahús. Á síðustu árum hefur bæði bráðaplássum og endurhæfingar- og langvistarrýmum fækkað m.a. með lokun geðdeildar í Fossvogi og lokun Arnarholts.
Alls hefur plássum fækkað um 120 án þess að ný og viðeigandi samfélagsúrræði hafi verið til reiðu. Þannig hafa möguleikar Geðsviðs LSH bæði til bráðameðferðar og til endurhæfingar stöðugt verið að skerðast.
Stjórn Geðlæknafélags Íslands beinir því þeim eindregnu tilmælum til stjórnenda Geðsviðs LSH að þeir sjái til þess hætt verði við fyrirhugaða lokun á starfsendurhæfingu Bergiðjunnar við Kleppsspítala og breytingu á deild 28 í Hátúni 10 úr sólarhringsdeild í dagdeild. Ef af þessari ákvörðun verður mun þrengja enn meira að allri endurhæfingu, sem þegar er mjög takmörkuð og ekki í sjónmáli nein úrræði sem koma í staðinn.
Stjórn Geðlæknafélags Íslands skorar á yfirvöld að afturkalla þessa ákvörðun þar til önnur viðunandi úrræði hafa fundist. Ef dregið verður úr þjónustu deildar 28 í Hátúni 10 er heilsu 60-80 geðfatlaðra einstaklinga stefnt í voða. Ekki verður séð hvernig byggja á nýtt sjúkrahús og reka , ef stöðugt er dregið saman og lögð af nauðsynleg og vel rekin þjónusta en Endurhæfingarsvið Geðsviðs hélt sig innan ramma fjárhagsáætlunar á árinu 2007," segir í ályktun stjórnar Geðlæknafélags Íslands.