Skallaði konu í andlitið

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt 19 ára gamla stúlku í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að skalla aðra konu í andlitið. Það gerðist utan við skemmtistað í Reykjavík í nóvember.

Stúlkan játaði brot sitt og kemur fram í dómnum að hún iðrist gerða sinna. Stúlkan var árið 2006 dæmd fyrir samskonar líkamsárás en þá var refsingu frestað skilorðsbundið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert