Ökumaður var handtekinn vegna gruns um ölvun við akstur í Hveragerði rétt fyrir klukkan sex í kvöld. Hann hafði þá ekið á ljósastaur. Bíllinn er talsvert skemmdur, en ökumaðurinn slapp ómeiddur. Hann var færður á lögreglustöðina á Selfossi til yfirheyrslu. Málið er enn í rannsókn.