Náttúruverndarsamtök Íslands hafa sent Árna M. Mathiesen, fjármálaráðherra, bréf með ýmsum spurningum um fyrirhugað álver Norðuráls í Helguvík. Er Árni m.a. spurður hvaða áhrif hann telji að framkvæmdir við áverið og virkjanaframkvæmdir þess vegna hafi á möguleika Seðlabankans á að ná yfirlýstu verðbólgumarkmiði sínu.
Í bréfinu benda Náttúruverndarsamtökin á, að stýrivextir Seðlabankans og almennt vaxtastig sé mun hærra nú en var þegar framkvæmdir við Kárahnjúkavirkjun hófust árið 2003. Jafnframt sé atvinnuleysi í sögulegu lágmarki.