Fjögurra ára gamalt barn hlaut áverka á andliti þegar jeppi rakst á fólksbifreið á Laxárbrú skammt sunnan við Búðardal um kl. 16 í dag. Að sögn lögreglu er um minniháttar áverka að ræða.
Tildrög slyssins eru þau ökumaður jeppans missti stjórn á bifreiðinni í hálku þegar hann ók niður brekkuna, sem er til móts við brúna, með þeim afleiðingum að hún rann á brúna og skall að endingu á fólksbifreiðina. Fólksbifreiðin var stopp á brúnni sem er einbreið.
Ökumaðurinn var einn í jeppanum en þrennt var í fólksbifreiðinni. Báðir ökumennirnir hlutu minniháttar áverka.
Bílarnir skemmdust nokkuð og voru dregnir á brott með kranabifreið.