Árekstur varð í gærkvöldi á gatnamótum Eyrarbakkavegs og Þorlákshafnarvegs. Að sögn lögreglunnar á Selfossi var ökumaður annars bílsins grunaður um að aka undir áhrifum fíkniefna og færður á lögreglustöð til sýnatöku. Báðir bílarnir voru óökufærir eftir áreksturinn en ekki var um alvarleg meiðsl að ræða.