Eins hreyfils flugvél í sjóinn

mbl.is

Lít­il eins hreyf­ils flug­vél með ein­um manni inn­an­borðs missti vélarafl um 130 sjó­míl­um suðaust­an við Ísland fyr­ir stundu og er talið að hún hafi lent í sjón­um. Þyrla og flug­vél Land­helg­is­gæsl­unn­ar eru að leggja af stað á slysstað.

Ná­læg­um skip­um hef­ur verið gert viðvart en veður er slæmt á svæðinu og allt að 7 - 9  metra öldu­hæð.

Einn maður er inn­an­borðs en ekki er vitað um þjóðerni hans eða hvaðan vél­in er.  

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert