Flutningabíll keyrði út af vegi við Bakkaselsbrekku á Öxnadalsheiði um miðnætti í gær.
Að sögn lögreglunnar á Akureyri stoppaði ökumaður flutningabílsins til þess að aðstoða annan bíl en þegar hann ætlaði að leggja af stað aftur missti hann stjórn á bílnum og keyrði út af vegi. Að sögn lögreglu var hált á veginum.
Ökumaður slapp við alvarleg meiðsl.