Bræður, sem verið hafa í gæsluvarðhaldi undanfarnar vikur vegna fíkniefnamáls, eru lausir úr haldi, að því er fram kom í fréttum Útvarpsins.
Bræðurnir hafa setið í gæsluvarðhaldi frá í janúar. Tveir aðrir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna málsins, þar á meðal maður, sem strauk af lögreglustöðinni á Hlemmi um síðustu helgi.
Grunur leikur á að mennirnir hafi staðið að því að flytja 5 kíló af fíkniefnum til landsins með hraðsendingu frá Þýskalandi í nóvember í fyrra.