Lýsa yfir áhyggjum af ástandi Norðfjarðarflugvallar

Frá Norðfjarðarflugvelli
Frá Norðfjarðarflugvelli

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar lýsir þungum áhyggjum af bágbornu ástandi og viðhaldsskorti á Norðfjarðarflugvelli. Flugvöllurinn gegnir lykilhlutverki í þjónustu Fjórðungssjúkrahúss Austurlands og öryggi þeirra sem þangað sækja þjónustu. Þar er eina fæðingardeildin og skurðstofan á öllum austurhelmingi Íslands. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnar.

„Sjúklingar þurfa að eiga greiða leið á sjúkrahúsið og skjót viðbrögð geta skipt sköpum þegar senda þarf sjúklinga í séraðgerðir á stærri bráðasjúkrahúsunum. Þar geta mínútur skipt máli en það tekur sjúkrabíl um eina klukkustund að aka milli Neskaupstaðar og Egilsstaðaflugvallar við góðar aðstæður. Við erfiðar aðstæður eru vegir um Oddsskarð og Fagradal þekktir farartálmar.

Lagfæring flugvallarins og styrking Fjórðungssjúkrahússins mun gagnast öllum íbúum Austurlands og er meðal þeirra mótvægisaðgerða sem mesta þýðingu geta haft í kjölfar mikillar skerðingar aflaheimilda í Fjarðabyggð.

Eins og fram kemur í framlögðu minnisblaði slökkviliðsstjórans í Fjarðabyggð (sem annast sjúkraflutninga á svæðinu) hefur lendingum og farþegum í sjúkraflugi fjölgað um meira en helming milli áranna 2005 og 2007. Á árinu 2005 var 31 farþegi fluttur í 20 lendingum en árið 2007 voru lendingar 42 og farþegar 65.

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar skorar á samgöngu- og heilbrigðisyfirvöld að sameinast um nauðsynlegar úrbætur í þessu brýna hagsmunamáli Austfirðinga."

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert