Menntamálaráðherra hefur skipað Olgu Lísu Garðarsdóttur í embætti skólameistara Verkmenntaskóla Austurlands til fimm ára frá 1. mars 2008 að telja. Þrjár umsóknir bárust um embættið sem sendar voru skólanefnd Verkmenntaskóla Austurlands til umsagnar. Skólanefndin mælti í umsögn sinni til menntamálaráðherra einróma með því að Olgu Lísu Garðarsdóttur yrði veitt embættið.