Ömmum boðið í kaffi

Börnin á leikskólanum Arnarsmára í Kópavogi buðu mömmum og ömmum í morgunkaffi í morgun til að halda upp á konudaginn sem er á sunnudaginn. 

Brynja Björk Kristjánsdóttir leikskólastjóri segir að pabbar og afar hafi fengið lýsi og hákarl á bóndadaginn og að þetta sé gert til að leyfa öfum og ömmum að taka þátt í starfi leikskólans.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert