Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist 40,1% í nýrri skoðanakönnun, sem Fréttablaðið birtir í dag. Hefur fylgi flokksins aukist um þrjár prósentur frá könnun, sem blaðið birti fyrir mánuði. Fylgi Samfylkingarinnar mælist 35,2% sem er svipað og flokkurinn fékk í síðustu könnun blaðsins.
Fylgi VG mælist 14,2% sem er rúmlega prósetu minna en fyrir mánuði. Fylgi Framsóknarflokksins mælist 5,9% en var 8,9% fyrir mánuði. 3,8% sögðust myndu kjósa Frjálslynda flokksinn sem er svipað og fyrir mánuði.
71,9% aðspurðra sögðust styðja ríkisstjórnina en fyrir mánuði var þetta hlutfall 68,5%.
Hringt var í 800 manns í gær og tóku 63,3% afstöðu til spurningar um flokka og 87,3% afstöðu til spurningar um ríkisstjórnina.