Veðurstofan spáir vestlægri eða breytilegri átt í dag, víða 3-8 metrum á sekúndu en heldur hvassari á annesjum fyrir norðan. Léttskýjað verður um landið sunnan- og austanvert, en stöku él vestantil. Skýjað að mestu á norðanverðu landinu og dálítil snjókoma í kvöld. Frost verður yfirleitt 2-8 stig.