Kveikt var í bíl, sem farið hafði útaf á Flugvallarvegi á Suðurnesjum fyrir nokkrum dögum. Að sögn lögreglu komu slökkviliðsmenn frá Brunavörnum Suðurnesja og slökktu eldinn í bílnum, sem er ónýtur eftir.
Vitni sá til tveggja bíla, sem voru við bílinn skömmu fyrir brunann og er þeirra nú leitað. Málið er í rannsókna.
Fjölmargar kvartanir bárust til lögreglu frá íbúum nærri Akurskóla vegna brunaviðvörunarkerfi skólans en bilun er í kerfinu og varð það að fara í gang í tíma og ótíma í gærkvöldi og fram á nótt með miklum hávaða. Að sögn lögreglu stendur viðgerð yfir.