Fundi borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins var að ljúka. Samkvæmt heimildum mbl.is var niðurstaða fundarins sú, að opið verður hver tekur við embætti borgarstjóra af hálfu Sjálfstæðisflokksins í mars 2009.
Borgarstjórnarflokkurinn mun vinna sameiginlega að því að velja borgarstjóra þegar nær dregur. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson mun áfram gegna starfi oddvita og formanns borgarráðs.