Lögreglan á Suðurnesjum tók ökumann grunaðan um ölvun við akstur í gærkvöldi. Maðurinn var einnig kærður fyrir að aka bifreið án þess að hafa öðlast ökuréttindi.
Þá var annar ökumaður tekinn á Reykjanesbrautinni um miðjan dag í gær, grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.